logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Fréttir eftir mánuðum

Kennsla fellur niður þriðjudaginn 10.12.2019

10/12/19
Í Mosfellsbæ mun skóla-, frístunda og félagsmiðstöðvastarf raskast frá hádegi þriðjudaginn 10. desember vegna óveðurs sem spáð er að gangi yfir höfuðborgarsvæðið. Enginn ætti að vera á ferli eftir klukkan 15 nema brýn nauðsyn beri til. Gefin hefur verið út appelsínugul viðvörun vegna óveðursins sem spáð er. Foreldrar og forráðamenn barna eru beðnir um að sækja börn sín strax að skóladegi loknum til að tryggt sé að allir, börn, foreldar og starfsfólk geti náð heim til sín áður en veðrið skellur á. Foreldrar leikskólabarna sæki börn sín fyrir kl. 15. Allt frístunda- og félagsmiðstöðvastarf í Mosfellsbæ fellur niður svo og starf Tónlistarskóla og skólahljómsveitar. Þá munu íþróttamiðstöðvarnar að Lágafelli og Varmá verða lokaðar eftir kl. 14 á morgun og því fellur öll íþrótta- og sundkennsla niður eftir hádegið. Eldri grunnskólanemendur fara því beint heim eftir skóladag og eru foreldrar beðnir um að sjá til þess að þeir séu ekki á ferli þegar og eftir að veðrið skellur á. Reiknað er með að síðasti skólabíll aki heimakstur kl 13:30 nema annað verði tilkynnt og þurfa foreldra að gera ráðstafnir eftir því sem við á. Akstur frístundabíls fellur alfarið niður á morgun. Akstursþjónusta fatlaðra mun aka heim þeim skólabörnum sem þeirrar þjónustu njóta, strax að loknum skóladegi. Lokanir stofnanna á fræðslu- og frístundasviði eru tilkomnar vegna öryggisráðstafana en enginn ætti að vera á ferli í veðri eins og spáð er. Fólk er beðið um að fylgjast vel með veðri í fjölmiðlum og fylgja tilmælum yfirvalda. Appelsínugul viðvörun þýðir að það séu miðlungs eða mikl¬ar lík¬ur á veðri sem geti valdið mikl¬um sam¬fé¬lags¬leg¬um áhrif¬um, tjóni eða slys¬um og hugsanlega ógnað lífi og lim¬um ef aðgát er ekki höfð.
Meira ...

Jólatónleikar 2019

03/12/19
Jólatónleikar Listaskóla Mosfellsbæjar 2019 9. des. Safnaðarheimili kl. 17.00 – Arnhildur, Jón, Brynja 9. des. Fmos kl. 17.00 og 18.00 – Rytmískir tónleikar 10. des. Safnaðarheimili kl. 17.00 – Ólöf, Brynja , Þórunn 10. des. Safnaðarheimili kl. 18.00 – Arnþór, Daníel 10. des. Lágafellskirkja kl. 17.30 – Ívar 10. des. Stofa 11 Listaskóli Mos kl. 18.00 – Vigdís, Lilja 11. des. Bæjarleikhús kl. 17.00 – Heiða, Gísli, Ingi Bjarni 12. des. Safnaðarheimili kl. 17.00 – Ólafur, Friðrik 12. des. Safnaðarheimili kl. 18.00 – Gerður 12. des. Lágafellskirkja kl. 17.00 – Íris, Lilja 12. des. Lágafellskirkja kl. 18.00 – Kristín, Friðrik 13. des. Safnaðarheimili kl. 17.00 – Símon 13. des. Safnaðarheimili kl. 18.00 – Vigdís, Tobías, Lilja
Meira ...

Innritun nemenda Listaskóli Mosfellsbæjar - tónlistardeild

10/04/19
Innritun nemenda Listaskóli Mosfellsbæjar - tónlistardeild Innritun nemenda skólaárið 2019 – 2020 Nemendur, sem eru í námi við Listaskóla Mosfellsbæjar – tónlistardeild, þurfa að staðfesta áframhaldandi nám fyrir 15. apríl 2019, með því að senda tölvupóst á listaskoli@mos.is. Umsóknarfrestur fyrir nýja nemendur er til 15. apríl. Nýir nemendur þurfa að sækja um skólavist í gegnum íbúagáttina á vef Mosfellsbæjar, mos.is. Nánari upplýsingar á heimasíðu skólans, listmos.is
Meira ...

Tónleikar í FMOS

28/03/19
Tónleikar í FMOS fimmtudag 28. mars kl:19. Fram koma samspilshópar úr Listaskóla Mosfellsbæjar. Rokkbál. Ice Dragon. Ready. Saltkorn.
Meira ...

ÁKVEÐIÐ AÐ GERA ÚTTEKT Á ÖLLU SKÓLAHÚSNÆÐI BÆJARINS

21/03/19
21.mars 2019 ÁKVEÐIÐ AÐ GERA ÚTTEKT Á ÖLLU SKÓLAHÚSNÆÐI BÆJARINS
Meira ...

08/03/19
Burtfararprófstónleikar Báru Dísar Böðvarsdóttur
Meira ...

Dagur Listaskólans 2. mars

27/02/19Dagur Listaskólans 2. mars
Laugardaginn 2. mars verður opið hús Listaskólanum í Háholti 14 eins og undanfarin ár frá kl. 11.00 - 13.00. Þar er boðið upp á lifandi tónlist í öllum stofum, myndlist á veggjum og glóðvolgar vöfflur í setustofunni. Leikfélag Mosfellssveitar
Meira ...

Vetrarleyfi dagana 25. – 26. febrúar 2019.

20/02/19Vetrarleyfi dagana 25. – 26. febrúar 2019.
Engin kennsla er í Listaskóla Mosfellsbæjar dagana 25.- 26. feb. 2019, þar sem vetrarleyfi er í Listaskólanum og grunnskólunum.
Meira ...

Facebook síða skólans.

06/01/19Facebook síða skólans.
Á facebook síðu skólans er fullt af skemmtilegum myndum af skólastarfinu, stuttar upptökur og allir viðburðir sem skólastarfið og nemendur standa fyrir. Smelltu á okkur "like" og fylgstu með hvað er að gerast hjá okkur hverju sinni ;)
Meira ...

Jólafrí

18/12/18
Jólafrí
Meira ...

Síða 2 af 4

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira