logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Dagur Listaskólans 5. mars - Listaskóli Mosfellsbæjar 10 ára

03.03.2016 15:17
Í tilefni af afmæli Listaskólans verða flutt lög úr söngleikjum í Bæjarleikhúsinu að þverholti laugardaginn 5. mars. Flytjendur eru úr Skólahljómsveit Mosfellsbæjar, Tónlistardeildinni og Leikfélagi Mosfellssveitar. Nemendur úr Myndlistarskóla Mosfellsbæjar skreyta húsið með ævintýrablómum. Leikstjóri er Agnes Wild.

Sýningar verða kl. 14:00 og 17:00 og eru allir hjartanlega velkomnir.
Aðgangur er ókeypis.

Viðburður á facebook

LISTASKÓLI OG MYNDLISTASKÓLINN BJÓÐA HEIM

Sama dag verður opið hús í Listaskóla Mosfellsbæjar að Háholti 14 eins og undanfarin ár frá kl. 11:00 – 13:00. Boðið upp á lifandi tónlist í öllum stofum, myndlist á veggjum og glóðvolgar vöfflur í setustofunni. 

Tónlistadeild Listaskólans á facebook

Myndlistarskólinn að Álafossvegi 13 býður einnig heim og er með opið hús frá kl. 11:00 – 14:00.

MYNDLISTASÝNING Í LISTASAL MOSFELLSBÆJAR

Myndlistarskólinn opnar sýningu á verkum framhaldshóps í olíumálun í Listasalnum á Bókasafni Mosfellsbæjar laugardaginn 5. mars kl. 15.00.

Heimasíða Listaskóla Mosfellsbæjar

Dagur Listaskólans 2016

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira