logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Fréttir eftir mánuðum

Skrifstofa skólans er lokuð til mánudagsins 17. ágúst.

12/06/20
Skrifstofa skólans er lokuð til mánudagsins 17. ágúst. Hægt er að hafa samband við skólastjóra í síma 8648019 eða netfangi atli@mos.is
Meira ...

4. maí, hefst kennsla samkvæmt stundaskrá í Listaskóla Mosfellsbæjar.

30/04/20
Kæru nemendur/forráðamenn. Frá og með næsta mánudegi, 4. maí, hefst kennsla samkvæmt stundaskrá í Listaskóla Mosfellsbæjar. Hér fyrir neðan eru nokkrar tilvitnanir frá yfirvöldum og svo skipulag skólastarfsins: - Áfram verða sóttvarnarráðstafanir í skólum, sem og annars staðar, og skólar fylgja viðbragðsáætlunum sínum varðandi mögulegt smit. Neyðarstig almannavarna vegna COVID-19 er áfram í gildi. Linkur og slóð á síðuna er hér: Spurt og svarað um tónlistarskóla / mrn.is/skolastarf Tónlistarskólar munu starfa með hefðbundnum hætti frá og með 4. maí nk., en þar verða áfram í gildi sóttvarnaráðstafanir og takmarkað aðgengi fullorðinna að byggingum. Mega nemendur sækja einkatíma í tónlistarskólum, að teknu tilliti til hreinlætis og fjarlægðar? Já, nemendur á leik- og grunnskólaaldri geta sótt tíma án takmarkana. Nemendur eldri en 16 ára og kennarar þurfa að virða reglur um 2 metra fjarlægð milli fólks. Ef forráðamenn eru með í tímum þarf að virða 2 metra reglu milli kennara og forráðamanna. Mega nemendur sækja hóptíma í tónlistarskólum, að teknu tilliti til hreinlætis og fjarlægðar?Já, nemendur á leik- og grunnskólaaldri geta sótt tíma án takmarkana. Kennarar og nemendur eldri en 16 ára þurfa að virða reglur um 50 fullorðna einstaklinga í sama rými og um 2 metra fjarlægð milli þeirra. Skipulagið í Listaskóla Mosfellsbæjar í maí 2020 verður svona: Kennslufyrirkomulag og vormat • Kennsla verður samkvæmt stundaskrá 4. maí – 20. maí. • Vorpróf, tónleikar og formleg skólaslit falla niður. • Vormat verður afhent í lok síðustu kennslustundar, dagana 18. – 20. maí. Einkunnir fyrir stigspróf og áfangapróf verða sendar í pósti um miðjan júní. Próf og kennslumat • Nemendum gefst kostur á að taka Miðpróf í tónfræðagreinum 14. maí eða 19. maí, eða fresta því til loka september (skipulag frá prófanefnd). • Þeim nemendum, sem ljúka vilja stigs- eða áfangaprófum, býðst kennsla dagana 25. – 27. maí. • Áfangapróf og stigspróf fara fram fimmtudaginn 28. maí, nema stigspróf yngri nemenda, sem flest verða dagana 18-20. maí. Bestu kveðjur og gleðilegt sumar, Atli Guðlaugsson, skólastjóri
Meira ...

Innritun nemenda skólaárið 2020-2021

15/04/20
Listaskóli Mosfellsbæjar - tónlistardeild Innritun nemenda skólaárið 2020-2021 Sendur hefur verið tölvupóstur á alla núverandi nemendur skólans, vegna staðfestingar á námi næsta skólaár. Umsóknarfrestur fyrir nýja nemendur er til 15. maí. Sækja þarf um skólavist í gegnum íbúagáttina á vef Mosfellsbæjar, mos.is. Nánari upplýsingar á heimasíðu skólans, listmos.is Skólastjóri
Meira ...

Tónlistarkennsla Listaskóla í samkomubanni

27/03/20
Tónlistarkennsla Listaskóla í samkomubanni Ágætu nemendur/forráðamenn. Eins og ykkur er kunnugt, fer nú öll tónlistarkennsla á vegum Listaskólans fram í gegnum síma og tölvu. Þetta eru óvenjulegir tímar og við höfum öll, bæði kennarar og nemendur, þurft að finna nýjar lausnir. Undanfarnar tvær vikur höfum við notast við forrit eins og Zoom, Facetime, Skype, Messenger og WhatsApp. Þá er mikið notast við síma og námsefni sent í tölvupósti. Allt hefur þetta sína kosti og galla og enginn hefur náð fullkomnun í nýjum kennsluaðferðum, en þær batna dag frá degi. Ég vil hrósa nemendum og foreldrum fyrir að vera opnir fyrir þessum lausnum og hrósa kennurunum fyrir að stinga sér út í djúpu laugina og leita lausna, sem henta hverju sinni. Við munum halda þessu verklagi, þar til faraldurinn gengur niður og hvetjum alla til að æfa sig reglulega og halda góðu sambandi við sína kennara. Ef einhverjar spurningar vakna, er sjálfsagt að vera í síma- eða tölvusambandi við sinn kennara og þá er einnig hægt að vera í sambandi við skólastjóra í síma 864 8019, eða í netfanginu atli@mos.is. Nánari upplýsingar má finna á listmos.is. Gangi ykkur vel. Bestu kveðjur, Atli Guðlaugsson, skólastjóri
Meira ...

Listaskóla lokað

17/03/20
Listaskóla lokað Kæru nemendur/forráðamenn. Nú hefur verkfall starfsmanna Eflingar, sem starfa utan höfuðborgarinnar, staðið yfir í rúma viku. Starfsmaður, sem sinnir ræstingum í húsnæði Listaskólans/tónlistardeild, er í viðkomandi stéttarfélagi. Skólastjóri hefur sinnt nauðsynlegustu þrifum og sóttvörnum síðustu viku. Fylgst hefur verið með húsnæði daglega, en nú er svo komið, að í samstarfi við Heilbrigðiseftirlit Kjósarsvæðis hefur verið ákveðið að loka skólanum. Skólinn mun því fella niður alla staðbundna kennslu frá og með deginum í dag. Á meðan þetta ástand varir, verður boðið upp á leiðsögn við heimanám, sem kennarar eru nú að útfæra, ýmist í gegnum síma eða tölvur. Kennarar verða í sambandi við sína nemendur og forráðamenn við fyrsta tækifæri varðandi það skipulag. Um leið og úr rætist, þá mun kennsla hefjast, en undir þeim formerkjum, sem almannavarnir og sóttvarnalæknir hafa sett skólahaldi. Ég hvet ykkur öll sem eitt til að halda áfram náminu og æfingum. Gangi ykkur sem best og ég mun upplýsa foreldra og nemendur jöfnum höndum. Með kærri kveðju, Atli Guðlaugsson, skólastjóri
Meira ...

Kennsla fellur niður

13/03/20
Kennsla fellur niður í Listaskólanum, eins og í grunnskólunum mánudaginn 16. mars, vegna skipulagsvinnu Skólastjóri
Meira ...

Viðbragðsáætlun Mosfellsbæjar

10/03/20
Viðbragðsáætlun Mosfellsbæjar https://www.mos.is/library/Skrar/.pdf-skjol/STEFNUR_Listahlutur_a_sidum/Stefnur_Stjornsysla_skattar_og_gjold/Vi%C3%B0brag%C3%B0s%C3%A1%C3%A6tlun%20um%20heimsfaraldur%20veirus%C3%BDkinga%20-%20Copy%20(1).pdf
Meira ...

Dagur Listaskólans 07.mars

07/03/20
Komið þið sæl Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við sóttvarnalækni lýst yfir neyðarstigi almannavarna vegna kórónaveiru (COVID-19). Mosfellsbær hefur í forvarnarskyni ákveðið að fresta Degi Listaskólans. Ekki verður að svo stöddu gerð breyting á skólahaldi Listaskólans. Með kærri kveðju og ósk um góðan laugardag Atli Guðlaugsson skólastjóri
Meira ...

Dagur Listaskólans 07.mars.2020

05/03/20
Dagur Listaskólans er laugardaginn 7. mars. 2020 Það er opið hús í Háholti 14 kl. 11.00 -13.00. Þar er boðið upp á tónlist í öllum stofum og myndlistarsýningu á veggjum. Skólastjóri
Meira ...

Covid19 veiran

28/02/20
Hér eru mikilvægar upplýsingar um hvernig forðast eigi smit við Covid19 veirunni og hvað eigi að gera ef grunur vaknar um smit. https://www.facebook.com/178847272147064/posts/3122677181097377/
Meira ...

Síða 1 af 4

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira