logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Foreldravika í Listaskólanum 3.7. október 2022

29.09.2022 10:46

Vikuna 3-7. október er foreldrum boðið að koma í tíma nemandans til að fylgjast með og/eða ræða við kennarann um námið 


Foreldrar geta á margan hátt stutt börn sín í tónlistarnáminu og er þá helst að nefna eftirfarandi þætti úr Aðalnámskrá tónlistarskóla, sem beint er til foreldra/forráðamanna: 

Mikilvægt er að nemendur búi við jákvætt viðhorf til tónlistarnámsins, að foreldrar/forráðamenn sýni náminu áhuga og að þeir fylgist með framvindu þess.
 
Hljóðfæranám byggist að miklu leyti á daglegri og reglubundinni þjálfun og er að því að verulegu leyti heimanám. Án markvissra æfinga verður árangur rýr.
 
Nauðsynlegt er að nemendur geti æft sig þar sem þeir verða fyrir sem minnstri truflun og hafa ekki á tilfinningunni að þeir trufli aðra.
 
Ungum nemendum þarf að hjálpa við að skipuleggja æfingatímann. Árangursríkara er að ungir nemendur æfi sig oftar og skemur í senn er sjaldnar og lengur.
 
Tónlistarnám þarf að vera ánægjulegt og ánægjan felst ekki síst í stolti nemandans yfir eigin framförum og aukinni færni.
 
Eðlilegt er að áhugi nemenda sé ekki alltaf samur og jafn.  Ef nemandi sýnir merki um uppgjöf er mikilvægt að kennari og foreldrar/forráðamenn leiti orsaka og lausna. Stundum er nóg að skipta um viðfangsefni til að áhuginn glæðist á ný.
 
Hlustun er afar mikilvægur þáttur í öllu tónlistarnámi. Með því að hlusta á vel flutta tónlist fá nemendur nauðsynlegar fyrirmyndir. Foreldrar/forráðamenn  geta lagt sitt af mörkum með því að hvetja nemendur til að hlusta á fjölbreytta tónlist við margs konar aðstæður og með því að fara með þeim á tónleika þegar tækifæri gefast, bæði innan tónlistarskólans og utan.

(Úr aðalnámskrá tónlistarskóla, almennum hluta)

Til baka

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira