logo
  • Virðing -
  • Jákvæðni -
  • Framsækni -
  • Umhyggja

Myndlistaskóli Mosfellsbæjar

Myndlistarskóli Mosfellsbæjar er með myndlistarnámskeið fyrir börn, unglinga og fullorðna og skiptist skólaárið í tvö sjálfstæð misseri. Starfstími skólans fylgir skólastarfi grunnskólanna. Haustönn hefst að jafnaði um miðjan september og lýkur um miðjan janúar. Vorönn hefst upp úr miðjum janúar og lýkur í byrjun maí.

Kennd eru undirstöðuatriði teiknunar, mótunar og málunar og þess gætt að verkefnin séu fjölbreytt, hvað varðar efni og innihald og verkefnin hæfi aldri og þroska nemendanna.

Skólinn býður upp á sumarnámskeið fyrir börn og unglinga að loknu skólaári grunnskólanna og ávallt er leitast við skólann starfi fagfólk með þekkingu og reynslu á sviði myndlistar og barnastarfs.

Myndlistarskólinn vinnur árlega að sameiginlegri dagskrá og sýningum þeirra aðila er starfa undir merkjum Listaskóla Mosfellsbæjar.

Skólinn er til húsa í gamla verksmiðjuhúsinu í Álafosskvos.

Hafðu samband

Aðsetur: Álafossvegur 23

Sími:    663 5160

 Skólastjóri: Ásdís Sigurþórsdóttir

Netfang:   myndmos[hja]myndmos.is

Vefur: myndmos.is

Facebook: Myndlistarskóli Mosfellsbæjar

Almennt um skólann

Myndlistaskóli Mosfellsbæjar er til húsa á annarri hæð í gamla verksmiðjuhúsinu í Álafosskvos og hefur starfað þar síðan í janúar 1999. Hann hefur það markmið að veita íbúum í Mosfellsbæ þekkingu og þjálfun í myndlist, þroska fegurðarskyn þeirra og efla og glæða áhuga þeirra á menningu og listum.

Skólinn er sjálfstæð eining innan Listaskóla Mosfellsbæjar skv. samningi við Bæjarstjórn Mosfellsbæjar frá því í febrúar 2006. Í skólanum eru kennd undirstöðuatriði teiknunar, mótunar og málunar. Verkefni sem nemendur fá við að glíma eru fjölbreytt, bæði hvað varðar efni og innihald. Þess er gætt að verkefnin hæfi aldri og þroska nemendanna.

Skólinn leitast við að veita nemendum sínum sambærilegt nám og aðstöðu og viðgengst í myndlistarskólum annarra bæjarfélaga. Námsgjöldum er stillt í hóf svo flestir eigi þess kost að sækja nám við skólann og miðast þau við gjöld sambærilegra skóla annarra bæjarfélaga. Skólinn er styrktur af bæjarfélaginu.

Skólinn hefur á að skipa hæfum kennurum, starfandi listamönnum með háskólanám á því sviði myndlistar sem þeir kenna hverju sinni.

Námskeið fyrir börn og unglinga

Fjöldi nemenda á hverju námskeiði er takmarkaður svo hver og einn nemandi fái sem mesta athygli og aðstoð frá kennara. Námskeið barna og unglinga miða við aldurinn 6 ára til 16 ára.

Kennsla barna og unglinga fer fram á virkum dögum eftir skóladag grunnskólanna. 

Námskeið fyrir fullorðna

Á námskeiðum fyrir fullorðna eru kennd undirstöðuatriði myndlistar og grunnur lagður að áframhaldandi námi eða sjálfstæðri vinnu á eigin vegum.

Reynt er að halda byrjendanámskeið eða grunnnámskeið fyrir fullorðna á hverjum vetri þar sem áhersla er lögð á teikningu, litafræði og myndbyggingu, sem er undirbúningur fyrir nám í málun.

Kennsla fullorðinna fer fram virka daga á kvöldin.

Haust- og vornámskeið

Haustnámskeið hefjast um miðjan september - Innritun hefst síðustu daga ágústmánaðar.

Vornámskeið hefjast um miðjan janúar - Innritun hefst í lok desember.

Þessi síða notar vafrakökur Lesa meira